Occhipinti, Arianna

Arianna Occhipinti er ung og öflug víngerðarkona í Fossa di Lupo á Suðausturhorni Sikileyjar. Hún hóf eigin vínrækt fyrir 15 árum síðan þá rétt rúmlega tvítug. Hún fór í víngerðarskóla en lærði mest af frænda sínum og öðrum í hennar nærumhverfi sem stunduðu náttúrulega víngerð.

Strax frá upphafi hefur Arianna haft sterka sýn á hvað vínin hennar eigi að endurspegla. þau eiga að vera persónuleg, hrein og bein og með sterka tilfinningu fyrir uppruna sínum. Hennar leið að því marki er að gera vín á eins náttúrulegan hátt og er unnt, lífræn, án nokkurra eiturefna, náttúrulega gerjuð, ófilteruð og með littlu viðbættu súlfati. Vínin hennar hafa það sameiginlegt að vera sérlega fáguð og vönduð.

Smelltu hér til að sérpanta hjá Vínbúðinni eftirfarandi vín frá Occhipinti og fá sent í vínbúð að eigin vali hvar á landi sem er (án aukakostnaðar):